Gríðarlega öflugar smálaxagöngur hafa verið í ánni þetta sumarið og hafa þær verið frábær viðbót við stórlaxana sem ávallt má finna í Blöndu.
Metveiðin í ánni er frá árinu 1975 en þá veiddust 2.363 laxar í ánni. Síðast þegar við heyrðum af ánni, um miðja síðustu viku, þá stóð heildartala veiddra laxa þetta sumarið í 2.362 og því orðið nokkuð ljóst að nýtt met lítur dagsins ljós í Blöndu þetta árið.
Það gæti þó verið að metið hafi þegar verið slegið þar sem líklegt er að eitthvað vanti upp á skráningu í bókina. Bókin á svæði 1 fór nefnilega því miður á flakk í örfáa daga og fannst ekki. Einhverjir veiðimenn hafa því lent í vandræðum með skráningu afla.
Tekið af agn.is
JÁG