17 ágú. 2009
Ásarnir að detta í 850 laxa !
Sumarið hefur verið stórkostlegt í Laxá á Ásum og minnir veiðin óneitanlega á gömlu góða dagana þegar áin var upp á sitt besta. Á laugardaginn var áin að skríða í 850 fiska og samkvæmt veiðibókinni hafa allir dagar síðustu vikuna gefið vel yfir 20 laxa á stangirnar tvær.
Enn eru nýgengnir fiskar að taka í bland við þá legnu og eru smáar flugur, hitch og langir grannir taumar að virka hvað best. Veiðimaður sem var að koma af svæðinu sagði lax vera á öllum stöðum í efri hluta árinnar og ótrúlegt magn af laxi á sumum þeirra.
Mikill fiskur er einnig í Laugardalsánni og er heildarveiðin nú komin í 394 laxa. Verður að teljast ansi líklegt að áin bæti um betur frá síðasta sumri en þá komu 417 laxar á land.
Tekið af agn.is
JÁG
Til baka