05 mar. 2009
Guðni Guðbergsson kynnir veiðimál og veiðihorfur
Hvernig verður veiðisumarið 2009?
Guðni Guðbergsson heldur erindi hjá Stangaveiðifélagi Akureyrar, þriðjudaginn 10. mars kl. 20.30 í framsóknarhúsinu við Hólabraut.
Í erindi sínu fjallar Guðni um starfsemi Veiðimálastofnunar og áherslur hennar í rannsóknum.
Fjallað verður um þróun veiða í ám og vötnum á undanförnum árum og litið á horfur komandi veiðisumars.
Í hverju eru áhrif stangveiða fólgin?
Hversu sterkt veiðitæki er stöngin?
Að erindi loknu svarar Guðni fyrirspurnum fundarmanna.
Guðni Guðbergsson er fiskifræðingur og sviðsstjóri Auðlindasviðs Veiðimálastofnunar og hefur starfað við rannsóknir á laxi og silungi frá árinu 1979.
Hér er á ferðinni mjög áhugavert erindi frá einum helsta sérfræðingi þjóðarinnar á þessu sviði. Erindið varðar svo sannarlega alla áhugamenn um stangveiðar.
Staður og stund: Framsóknarhúsið við Hólabraut, þriðjudagskvöld 10. mars kl. 20.30.
Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir.
Boðið verður upp á kaffi og meðlæti.
--------------------------
Veiðikveðja
Stjórn og fræðslunefnd SVAK
Til baka