18 jan. 2009
Fyrsti laxinn kom úr Helmsdale river
Gaman er að geta þess að fyrsti lax ársins á Bretlandi kom úr Helmsdale river í Skotlandi.
Það var heimamaður og þrautreyndur leiðsögumaður við ánna sem veiddi fyrsta laxinn. Veiddist hann í Lower Caen pool á svæði eitt og tók hann Alistairtúpu, laxinn vó um 11 pund. Var hann með 16 feta tvíhendu og notaði sökkenda. Þetta var fyrsta kast veiðimannsins svo það má segja að sumarið byrji vel hjá honum. Þar að auki fékk hann í verðlaun veiðikort í ánna í sumar! Þetta var á fyrsta degi veiðitímabilsins og á þessum svokölluðu frídögum í ánni en við greindum frá þeim fyrir nokkru. Komu um 135 manns fyrsta daginn og allir skemmtu sér hið besta við sögur, veitingar og ofurlitla laxveiði.

Hérna sést flugan sem veiðimaðurinn notaði.
Hérna er hylurinn þar sem laxinn veiddist.
Sjá; http://www.helmsdale.info/news/2009/01/13/150822.html
ÞB
http://www.helmsdale.info/news/2009/01/13/150822.html
Til baka