Fréttir/Heim
     Um félagið
     Tenglar
     Veiðileyfi
     Fluguveiðiskóli
     Veiðitölur
     Skráning í veiðibók


Hofsá

Ólafsfjarðará

Svarfaðardalsá

Laxá í Aðaldal

Hörgá og Öxnadalsá

Fjarðará

Um SVAK

Símanúmer félagsins: 841-1588
Tölvupóstur: svak@svak.is

Stjórn félagsins 2012-2013

Guðrún Una Jónsdóttir

Formaður 868-2825 gudrun@svak.is
Halldór Ingvason Gjaldkeri 821-9400 halldor@svak.is
Sævar Örn Hafsteinsson Varaformaður 853-9585 saevar@svak.is
Arnar Þór Gunnarsson Meðstjórnandi 862-0564 arnar@svak.is
Valdimar Heiðar Valsson Meðstjórnandi 862-2211 valdimar@svak.is
Jón Bragi Gunnarsson Varastjórn jonbragi@svak.is
Jón Sveinbjörn Vigfússon Varastjórn 894-1903 jonsveinbjorn@svak.is

 Nefndir:

Árnefnd Ólafsfjarðarár

Helstu verkefni:
□ Veiðiskýrslur
□ kort
□ setja upp kassa við ánna fyrir veiðiskýrslu
□ merkingar
□ svæðaskipting
□ fyrirkomulag
□ samskipti við samstarfsaðila
□ veiðivarsla ofl.

______________________________

Árnefnd Hofsár

Helstu verkefni:
□ Veiðiskýrslur
□ kort
□ setja upp kassa við ánna fyrir veiðiskýrslu
□ merkingar
□ svæðaskipting
□ fyrirkomulag
□ samskipti við samstarfsaðila
□ veiðivarsla ofl.
______________________
________

Fræðslu- og skemmtinefnd

Helstu verkefni:
□ Umsjón með öllum viðburðum
□ Vertíðarlokahátið
□ Vetrarstarf
□ Hnýtingarkvöld
□ Hnýtingarnámskeið
□ Kastnámskeið
□ Árkynning
□ Fræðsla - fiskifræði og matvælafræði
______________________________

Sölu og úthlutunarnefnd

Helstu verkefni:

Móta tillögur um fyrirkomulag úthlutunar á veiðileyfum.
Sjá um framkvæmd úthlutunar veiðileyfa.
______________________________


Vefnefnd
Helstu verkefni:
Móta tillögur um fyrirkomulag vefs félagsins, skilgreina markmið, finna útfærslur og hanna útlit.
______________________________

 

 Úthlutunarreglur

Almennar úthlutunarreglur SVAK -28.12.2007-
Félagsmenn sem vilja sækja um úthlutun veiðidaga skulu sækja um veiðisvæði á vefsíðu félagsins áður en skilafrestur rennur út. Aðeins þeir sem hafa greitt félagsgjöld síðasta árs geta sótt um í forsölu.

Hver félagsmaður má aðeins sækja um eina úthlutun á A-forgangi, eina á B-forgangi o.s.frv. A-umsóknirnar hafa hæstan forgang, síðan B-umsóknir og svo koll af kolli. Til að ákvarða innbyrðis forgang A-umsókna skal beita reglum um A-hópumsóknir og B-forgangsumsóknir.

Ef þessar reglur duga ekki til að skera úr um forgang umsókna skal fyrst leita eftir samkomulagi við jafnréttháa umsækjendur með því að gefa þeim kost á að velja í staðinn aðra óráðstafaða veiðidaga á sama svæði. Annars skal úthlutun ákvörðuð með hlutkesti.

Reglurnar gilda um úthlutun á öllum veiðisvæðum félagsins. Stjórn félagsins er þó heimilt að mæla fyrir um einstök frávik og verða þau þá kynnt sérstaklega.

A-hópumsókn
A-hópumsókn myndast við það að hópur félaga í SVAK sækir sameiginlega um tvær eða fleiri stangir í einni úthlutun eða veiðihóp (“holli”). Gildir þá að þeim mun fleiri stangir sem sótt er um þeim mun hærri forgang hefur umsóknin.
A-hópumsóknir fá forgang umfram aðrar umsóknir og eru afgreiddar fyrstar. Til að A-umsókn teljist gild verða umsóknir allra sem mynda hópinn að uppfylla öll eftirtalin skilyrði:

1. Umsækjandinn skal vera skráður félagsmaður í SVAK og skuldlaus við félagið við umsókn um veiðileyfi.
2. Í A-umsókn er veiðifélaganna getið með því að setja númer þeirra í hópumsóknarreit svo ekki sé vafi á því hverjir mynda hópinn.
3. Hámarksstærð hóps fer eftir stangafjölda á veiðisvæðinu, t.d. 4 í Ólafsfjarðará, 3 í Brunná o.s.frv.

B-forgangsumsókn
Reynist ekki unnt að uppfylla A-umsókn viðkomandi félagsmanns á viðunandi hátt fær B-umsókn hans aukinn forgang og þá sér í lagi ef um hópumsókn er að ræða og getið er skuldlausra félaga sbr. reglur um A-hópumsókn. B-forgangsumsóknir eru afgreiddar á undan öðrum B-umsóknum og þannig síðan koll af kolli.


Verkröð við úthlutun
1. A-hópumsóknir flokkaðar eftir veiðisvæðum og úthlutað veiðidögum.
2. Aðrar A-umsóknir flokkaðar eftir veiðisvæðum og úthlutað veiðidögum.
3. Úthlutunarnefnd fer yfir þær A-umsóknir sem ekki tókst að uppfylla og metur hverjar skuli fá B-forgang.
4. B-forgangsumsóknum raðað eftir veiðisvæðum og úthlutað veiðidögum.
5. Öðrum B-umsóknum raðað eftir veiðisvæðum og úthlutað veiðidögum.
6. C-E umsóknum raðað og úthlutað veiðidögum í þeirri röð.

Munið að fylla umsóknir ykkar vel og vandlega út. Hópumsóknir eru sterkastar og hafa mestan forgang. Sterk A-umsókn gengur fyrir sterkri B-umsókn og svo framvegis. Einfaldara getur það varla verið!

Vafaatriði
Sé félagsmaður SVAK óánægður með úthlutun sína getur hann undir umsjón forsvarsmanns úthlutunar á viðkomandi ársvæði, fengið að skoða meðhöndlun umsóknar sinnar. Stjórn SVAK ber ábyrgð á úthlutun veiðileyfa og úrskurðar um vafaatriði.

 Lög félagsins

 
1. gr. Nafn og heimili

Nafn félagsins er Stangaveiðifélag Akureyrar, skammstafað SVAK, og er heimilisfang þess á Akureyri.

2. gr. Tilgangur félagsins
Tilgangur félagsins er:
Að útvega félagsmönnum veiðileyfi
Að stuðla að samstarfi á milli stangaveiðifélaga á Eyjafjarðarsvæðinu
Að efla hróður stangaveiði með almennri fræðslu um íþróttina
Að styrkja stöðu stangaveiði sem almennings- og fjölskylduíþróttar
Að efla áhuga barna og unglinga á stangaveiði
Að vinna að samstöðu stangaveiðimanna og standa vörð um hagsmuni þeirra
Að stuðla að góðri umgengni veiðimanna um náttúruna og veiðisvæðin

3. gr. Félagsaðild
Félagsmenn skuldbinda sig til að fylgja lögum og reglum félagsins. Félagsmenn geta þeir orðið sem eiga lögheimili á Íslandi, enda sé inngöngubeiðni þeirra samþykkt af stjórn félagsins eða með meirihluta atkvæða á aðalfundi.

Verði félagsmaður uppvís að brotum á lögum um lax- og silungsveiði eða veiðireglur á veiðisvæði félagsins getur stjórn svipt hann rétti til veiða á svæðum félagsins í 1 ár. Við ítrekuð brot getur stjórn vísað viðkomandi úr félaginu. ( Nýr liður mars 2009 )

Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg og skilað inn til stjórnar félagsins.

4. gr. Gjöld
Árgjald fyrir komandi ár skal á hverjum tíma ákveðið á aðalfundi. Gjalddagi þess er 1. desember og greiðist þá gjald fyrir það starfsár sem í hönd fer. Eindagi árgjalds er 2 mánuðum síðar. Auk árgjalds skal hver nýr félagsmaður greiða inntökugjald. Upphæð þess er ákveðin á aðalfundi. ( Breytt mars 2009 )

Nýir félagsmenn skulu fyrst greiða árgjald á því ári sem þeim býðst úthlutun veiðileyfa.

Inntöku- og árgjöld þeirra sem eru 67 ára og eldri, barna og unglinga yngri en 18 ára og maka félagsmanna, skulu vera að hámarki 50% af fullum gjöldum.

Skuldi félagsmaður tvö árgjöld skal stjórn félagsins, er þrír mánuðir eru liðnir frá gjalddaga síðasta árgjalds, tilkynna honum að hann verði felldur af félagaskrá standi hann ekki skil á vangoldnum gjöldum til félagsins innan eins mánaðar.

5. gr. Eignir og ábyrgð
Enginn félagsmaður á tilkall til hluta af eignum félagsins þótt hann hverfi úr því eða félaginu sé slitið.
Enginn félagsmaður ber ábyrgð á fjárhagslegum skuldbindingum félagsins með öðru en félagsgjöldum sínum.

6. gr. Stjórn og stjórnarkosning
Stjórn félagsins skipa fjórir menn auk formanns og tveir til vara. Hver stjórnarmaður fer með eitt atkvæði á fundum. ( Breytt mars 2009 )
Framboðum til stjórnar skal skila skriflega til skrifstofu félagsins eigi síðar en fjórtán dögum fyrir aðalfund og skulu nöfn frambjóðenda birt í aðalfundarboði.
Formaður skal kosinn til eins árs en aðrir stjórnarmenn til tveggja ára, þó þannig að á hverju ári sé kosið um tvo meðstjórnendur og einn varamann. Stjórn skiptir með sér verkum á fyrsta fundi sínum eftir aðalfund. ( Breytt mars 2009 )

Stjórnarkosning fer fram á aðalfundi og skal kosið skriflega, bundinni kosningu milli frambjóðenda. Atkvæðaseðill við kjör meðstjórnenda er því aðeins gildur að á hann séu rituð tvö nöfn. Allir skuldlausir félagsmenn eru kjörgengir til stjórnarkjörs.

Stjórnarfundir skulu að jafnaði haldnir vikulega utan sumarorlofstíma en oftar ef formaður eða þrír stjórnarmenn óska þess. Afl atkvæða ræður úrslitum mála á stjórnarfundum.

Stjórnarfundur er löglegur ef þrír stjórnarmenn eru mættir, þar af formaður eða varaformaður.

7. gr. Aðalfundur
Aðalfundur hefur æðsta úrskurðarvald í öllum málefnum félagsins. Á honum fer fram kosning stjórnar, tveggja skoðunarmanna reikninga félagsins og eins til vara.

Allir skuldlausir félagsmenn hafa atkvæðisrétt og rétt til setu á aðalfundi.

Aukaaðalfund er heimilt að halda telji meirihluti stjórnar nauðsyn bera til. Aukaaðalfundur er boðaður á sama hátt og aðalfundur og hefur sama vald og aðalfundur.

Aðalfund skal halda fyrir 1. maí ár hvert. Stjórnin boðar til fundarins með a.m.k. sjö daga fyrirvara, bréflega eða með auglýsingu í dagblaði, eða með tryggum rafrænum hætti. Aðalfundur telst lögmætur sé löglega til hans boðað. ( Breytt mars 2009 )

Aðalfundur telst lögmætur sé löglega til hans boðað.

Tillögum til lagabreytinga skal skila skriflega til stjórnar a.m.k. fjórtán dögum fyrir aðalfund og skal þeirra getið í aðalfundarboði. Ekki verða greidd atvæði um aðrar tillögur til lagabreytinga en þær sem getið er í fundarboði og breytingartillögur við þær.

Á aðalfundi skal stjórn skýra frá starfsemi félagsins á liðnu starfsári og leggja fram skoðaða reikninga sem félagsmönnum hafa verið aðgengilegir í félagsheimili SVAK í a.m.k. sjö daga fyrir fundinn.

8. gr. Verkefni stjórnar
Milli aðalfunda hefur stjórn félagsins allar almennar framkvæmdir fyrir félagið á hendi. Henni er heimilt að kveðja sér til aðstoðar félagsmenn til afmarkaðra verkefna, nefndarstarfa o.s.frv.

Stjórn félagsins er óheimilt að undirrita aðrar fjárhagslegar skuldbindingar en samninga um veiðirétt og rekstur veiðisvæða.

Stjórn félagsins setur reglur um fyrirkomulag veiða á veiðisvæðum félagsins. Jafnan skulu þær reglur vera á grundvelli vísindalegrar ráðgjafar. ( Nýr liður mars 2009 )

14. gr. Lagabreytingar
Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi með 2/3 hlutum atkvæða hið minnsta.

15. gr. Félagsslit
Félaginu verður ekki slitið nema á aðalfundi og með samþykki meirihluta allra félagsmanna.

 



Stangaveiðifélag Akureyrar ][ www.svak.is ][ svak@svak.is ][ 841-1588 ][Pósthólf 357 602 Akureyri][Kt. 420503-2880][Rn.565-26-20503]

Verslað hjá DalPay Retail | Internet Merchant Accounts | www.dalpay.com