|
Mýrarkvísl fleiri dagar í boði
Mjög svo áhugaverðir laxveiðidagar í Mýrarkvísl voru að detta inn í vefsölu. Um er að ræða eins og hálfs daga holl á besta tíma og á frábærum verðum fyrir félagsmenn SVAK
SVAK hefur verið að bjóða upp á veiðidaga í Mýrarkvísl fyrriparsts sumars en nú hafa bæst við dagar um miðjan ágúst sem að margir telja með betri dögum í ánni. Dagarnir sem voru að bætast við eru þessir: 12-13ágúst: Byrjað kl.16:00 fyrri daginn og endað kl.22:00 seinni daginn. Hús fylgir leyfinu. 14-15ágúst: Byrjað kl.7:00 fyrri daginn og endað kl.13:00 seinni daginn. Hús fylgir leyfinu. 17-18ágúst: Byrjað kl.16:00 fyrri daginn og endað kl.22:00 seinni daginn. Hús fylgir leyfinu. 19-20ágúst: Byrjað kl.7:00 fyrri daginn og endað kl.13:00 seinni daginn. Hús fylgir leyfinu.
|
Til baka |



.jpg)








