Fréttir/Heim
     Um félagiš
     Tenglar
     Veišileyfi
     Fluguveišiskóli
     Veišitölur
     Skrįning ķ veišibók


Skjįlfandafljót

Laxį ķ Ašaldal Hagasvęšiš

Hörgį og Öxnadalsį

Hofsį

Hraun og Syšra Fjall Laxį ķ Ašaldal

Ólafsfjaršarį

Svarfašardalsį

Fjaršarį

Hofsį

Hofsá í Vesturdal Skagafirði.
Hofsá er innarlega í Vesturdal í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði um 330 km frá Reykjavík og 130 km frá Akureyri . Veiðisvæði árinnar er um 25 km langt og er uppistaða veiðinnar sjógengin bleikja,  þótt stöku sjóbirtingur og lax veiðist þar. Hofsá rennur í Vestari Jökulsá en á uppruna sinn upp undir Hofsjökli úr vötnum og lækjum þar í kring. Áin er nokkuð mikið vatnsfall og er stundum jökullituð en í hana rennur Fossá sem kemur úr Hofsjökli en ofan við ármót Fossár er Hofsáin alltaf tær á 5 til 6 km svæði og heitir þá Runukvísl upp að Runufossi sem er efsti veiðistaður .

Aðgengi og aðstaða
Aðgengi að ánni er ágætt alveg inn að bænum Giljar en þar fyrir innan er ráðlegt að vera á fjórhjóladrifnum bílum, helst jeppum . Töluverð ganga er með efrihluta árinnar en hægt er þó að aka nálægt henni víða. Veiðihús stendur um 50 m austan við þjóðveginn og er áin um 50 m vestan við veginn.  Þetta er rétt við bæinn Litlu-Hlíð, örskömmu áður en komið er að rimlahliðinu.

Frá veiðihúsi og að bergvatnssvæðinu ofan Fossár eru um 13 km og tekur um 25-30 mínútur að aka þangað. Til að fara þangað er beygt til vinstri (suðurs) frá veiðihúsi (gegnum rimahliðið) og haldið sem leið liggur áleiðis suður Sprengisand. Þegar komið er að Þorljótsstöðum (aður en vinstri beygjan uppá Sprengisand kemur) er farið beint áfram útaf veginum og ekinn áfram slóðinn þar. Sá slóði er seinfarinn og aðeins fær 4x4 bílum.  Slóðinn endar við Lambavað í Hofsá, rétt ofan ármótanna.  Ekki borgar sig að fara þar yfir ánna og aka lengra, heldur er best að leggja þar  land undir fót.


Veiðitilhögun í Hofsá sumarið 2013
Veiðitímabil:    15. Júlí til og með 4. október
Stangafjöldi:   3 stangir, veiðhús ekki innifalið.
Leyfilegt agn:  Eingöngu fluguveiði á öllu svæðinu en leyfilegt er að vera með kaststöng og flugu.  Ekki er leyfilegt að nota þríkrækjur.
Mögulegt er að fá veiðihús/sumarbústað leigt :
Marta (litlahlid@isl.is) 
4538086 /8234242

Verð:
Mánudag-fimmtudag Svak meðlimir 3.000 krónur stöngin. Aðrir 3.600 krónur
Föstudag-Sunnudag  Svak meðlimir 4.500 krónur stöngin. Aðrir 5.400 krónur

Veiðikvóti og reglur: 
Til 1. september er leyfilegt að hirða 3 bleikjur á stöng á dag,  í heild 9 bleikjur á dag. þegar kvóta er náð má veiða áfram en sleppa verður öllum fiski. Eftir 31 ágúst skal sleppa öllum fiski. Veiðimönnum ber skylda til að lengdar, þyngdarmæla og kyngreina allan drepinn fisk, ásamt því að lengdarmæla verður allan fisk sem sleppa á og skrá samviskusamlega í veiðibók.

Fyrirkomulag:
Hvern veiðidag er heimilt að veiða í 12 klst á tímabilinu 06:00 - 24:00.  

Veiðitölur:
Sumarið 2008 veiddust innan við 100 fiskar í Hofsá, allt fyrir ofan ármót við Fossá.  Neðan ármótanna var áin mjög jökullituð allt sumarið. 
Sumarið 2009  veiddust 442 bleikjur og 2 laxar eða 444 fiskar á 22 veiðidögum, sem gerir um 20 fiska meðalveiði á dag. 
Sumarið 2010 veiddust tæplega 300 bleikjur í Hofsá.

Sumarið 2011 veiddust tæplega 70 bleikjur í Hofsá.

Sumarið 2012 var frekar lélegt í Hofsá eins og víða en lítið seldist í ána og þar með lítil veiði. En tæplega 30 bleikjur veiddust á örfáum seldum dögum þetta sumarið.



Tilmæli frá Árnefnd Hofsár.
Skylt er að sleppa allri bleikju stærri en 45 sm með framtíð bleikjustofns veiðisvæðisins í huga og umfram allt að ganga vel og snyrtilega um ánna og náttúru hennar og aka aldrei utan vegaslóða. sem fyrir eru .

Veiðimenn eru vinsamlegast beðnir um að virða veiðireglur og fyrirkomulag
Alvarleg brot á þeim geta þýtt brottrekstur frá öllum veiðisvæðum SVAK.

Kaupa Veiðileyfi

 

 

 



 

 

Kort 1
Kort 2

Ábendingar BHA

Til baka


Stangaveišifélag Akureyrar ][ www.svak.is ][ svak@svak.is ][ 841-1588 ][Pósthólf 357 602 Akureyri][Kt. 420503-2880][Rn.565-26-20503]

Verslaš hjį DalPay Retail | Internet Merchant Accounts | www.dalpay.com