Fréttir/Heim
     Um félagiš
     Tenglar
     Veišileyfi
     Fluguveišiskóli
     Veišitölur
     Skrįning ķ veišibók


Skjįlfandafljót

Laxį ķ Ašaldal Hagasvęšiš

Hörgį og Öxnadalsį

Hofsį

Hraun og Syšra Fjall Laxį ķ Ašaldal

Ólafsfjaršarį

Svarfašardalsį

Fjaršarį

Mżrarkvķsl


Staðsetning: Mýrarkvísl er í Reykjahverfi við Húsavík og er þverá Laxár í Aðaldal.
Hún á upptök sín í Langavatni og kemur í Laxána mjög neðarlega eða í heiðarendanum rétt ofan Laxamýrar.
Úr Langavatni tekur áin stefnu til vesturs inn í mikla friðsæld, fjarri byggð og þjóðvegi og því hægt að njóta veiðanna til fulls í óspilltri náttúru.
Merktir veiðistaðir er 54 á c.a. 25 km vegalend og býður áin upp á mikla fjölbreytni, frá rólegum og skemmtilegum breiðum upp í hrikaleg gljúfur þar sem jafnvel þarf að styðja sig við spotta til að komast í færi við vel sjáanlega fiska.

Tölur: Algeng sumarveiði í ánni er um 250 laxar, mest árið 1986 þegar 490 laxar komu á land, hin seinni ár hefur fluguveiði stöðugt verið að aukast. Þær flugur sem hafa reynst best eru rauð og svört Frances, Laxá blá og Black Sheep.

Einnig veiðist á hverju ári mikið af staðbundnum urriða flestir á bilinu 1,5-5 pund en þó kemur fyrri að stærri fiskar veiðist.
Urriðinn heldur sig mest efst og neðst í ánni um miðbik veiðitímans en fyrst og síðast er hægt að finna hann um alla á.

Leyfilegt agn: Leyfilegt er að veiða á maðk á svæði 2 en aðeins flugu á svæðum 1 og 3.

Aðgengi: Vegarslóði liggur meðfram allri ánni og er hann að fólksbílafær ef varlega er farið á nokkrum stöðum, veiðimenn á fólksbílum geta þó lent í erfiðleikum eftir mikla úrkomu.

Fyrirkomulag: Í júní eru seldir stakir dagar,  menn ráða því sjálfir hvenær dagsins menn vilja veiða í júní,  með því skilyrðum þó að ekki má veiða lengur en 12 klst á dag á milli kl.8:00-24:00.  

Í júlí, ágúst og september eru stangirnar seldar í eins og hálfs dags hollum.  Og þá er hefðbundin veiðitími. Fyrri vaktin frá kl.7:00-13:00 en seinni vaktin frá kl.16:00-22:00,  nema í september, þá er seinni vaktin frá kl.15:00-21:00

Veiðimenn skipta svæðum sjálfir sín á milli.

Veiðihús: Veiðihús fylgir svæðinu frá 1. júlí - 20. september. Fyrir þann tíma fylgir ekkert hús með veiðileyfum. Í húsinu eru þrjú 2ja manna herbergi (veiðimenn sjá sjálfir um sængurföt) , eldhús, setustofa og baðherbergi.  Húsið er staðsett í landi Þverár í Reykjahverfi.

Kort af Mýrarkvíslinni má finna fyrir neðan myndirnar.

Kaupa Veiðileyfi

 


 Įrmótin

 Įrmótin-2

 Borgarhśsapollur

 Ķrland

Nafarhylur

Vodhylur

 Myndir: Kristján Friðriksson

 

Kort

 

Til baka


Stangaveišifélag Akureyrar ][ www.svak.is ][ svak@svak.is ][ 841-1588 ][Pósthólf 357 602 Akureyri][Kt. 420503-2880][Rn.565-26-20503]

Verslaš hjį DalPay Retail | Internet Merchant Accounts | www.dalpay.com