Fréttir/Heim
     Um félagiš
     Tenglar
     Veišileyfi
     Fluguveišiskóli
     Veišitölur
     Skrįning ķ veišibók


Hofsį

Ólafsfjaršarį

Svarfašardalsį

Laxį ķ Ašaldal

Hörgį og Öxnadalsį

Fjaršarį

Noršurį

Norðurá í Norðurárdal í Skagafirði

Norðurá er í Norðurárdal í Skagafirði þar sem komið er niður af Öxnadalsheiðinni frá Akureyri. Veiðisvæðið er einungis í 64. km fjarlægð frá Akureyri en í Norðurá veiðist mestmegnis bleikja ásamt stöku laxi. Veiðisvæðið sem nær frá Valagilsá og niður að Borgargerði er á milli 5 til 6 km langt og er leyfilegt að veiða á þrjár stangir í einu. 

jyt

Kaupa veiðileyfi

Aðgengi og aðstaða:


Mjög gott aðgengi er við ána þar sem þjóðvegur eitt liggur meðfram ánni. Til þess að fara á efri svæðin er keyrður gamli þjóðvegurinn þegar það er komið niður af Öxnadalsheiðinni á suðurleið.

Veiðitilhögun í Norðurá sumarið 2012

Veiðitímabil:  1. júlí til og með 9. september
Stangafjöldi:  3. stangir og veiðihús greiðist sér.
Leyfilegt agn: Eingöngu fluguveiði á öllu svæðinu en leyfilegt er að vera með kaststöng og flugu.

Börnum undir 16 ára aldri er heimilt að veiða á maðk eða spún en eingöngu þar til kvóta er náð.

Verð:

1. júlí til 9.september Ein stöng á 5.000,- þrjár stangir með húsi 18.000,-

Ef óskað er eftir húsi er hægt að hafa samband í síma 6601642 / 8651799 

Veiðikvóti og reglur:

Leyfilegt að hirða 5 bleikjur á stöng á dag,  í heild 15 bleikjur á stangirnar þrjár. Þegar kvóta er náð má veiða áfram en sleppa verður öllum fiski. Veiðimönnum ber skylda til að lengdar-, þyngdarmæla og kyngreina allan drepinn fisk, ásamt því að lengdarmæla verður allan fisk sem sleppa á og skrá samviskusamlega í veiðibók.

Fyrirkomulag:

Hvern veiðidag er heimilt að veiða í 12 klst á tímabilinu 06:00 - 24:00.   Stangir eru seldar í heilum dögum og mega veiðimenn sem kaupa einnig gistingu koma í hús kvöldið fyrir veiðidag kl. 20.00.  Þeir sem eru að hætta þurfa að yfirgefa veiðihús fyrir þann tíma.

Veiðitölur:

Það hefur ekki verið haldið utan um veiðitölur síðustu ára.

Árkynning:

Þeir sem versla veiðileyfi í Norðurá í Skagafirði verður boðið á árkynningu á svæðinu Þar sem farið verður yfir bestu veiðistaðina og bestu nálgunina við þá.

Skotveiði:

Eftir 20. ágúst er hægt að fá aðgang að akri þar sem það er hægt að fá að skjóta gæs. Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband í síma 6601642

Veiðimenn eru vinsamlegast beðnir um að virða veiðireglur og fyrirkomulag
Alvarleg brot á þeim geta þýtt brottrekstur frá öllum veiðisvæðum SVAK.

 

Kaupa veiðileyfi

kort

 Sækja stærra kort

 

 

Til baka


Stangaveišifélag Akureyrar ][ www.svak.is ][ svak@svak.is ][ 841-1588 ][Pósthólf 357 602 Akureyri][Kt. 420503-2880][Rn.565-26-20503]

Verslaš hjį DalPay Retail | Internet Merchant Accounts | www.dalpay.com