Sjá lausa daga hér - SVAK-félagar fá 20% afslátt á leyfunum.
Fá svæði í Laxá geyma jafn mikið af urriða og nær hann að jafnaði 3-5 punda stærð, fái hann að taka út vöxt sinn. Þeir eru þó til stærri. Meðalstærð urriðans á þessum svæðum hefur hins vegar farið minnkandi síðustu árin og ástæðan líklega sú að veiðimenn hafa verið gjarnir á að drepa stærstu fiskana. Til að sporna við þessari þróun höfðum við til veiðimanna er vilja sleppa stærstu urriðunum og láta sér nægja nokkra fiska af minni gerðinni í soðið. Svæðin geta boðið upp á urriðaveiði í hæsta gæðaflokki ef gengið er um þau af virðingu og hófsemi. Markmiðið er að byggja upp svæði þar sem veiðimenn geta sett í stóra fiska í hverjum streng. Því er aðeins leyfð fluguveiði og sleppa skal öllum fiskum yfir 40 cm. Minni fiskurinn er mun betri matfiskur og mörkin eru sett við tvo slíka á stöng á dag. Vinsamlegast kynnið ykkur veiðireglurnar vel áður en haldið er til veiða.
ATH - árin 2011-2014 stendur yfir rannsókn á urriðanum á svæðinu. Til að kanna stofnstærð, far, vöxt og lifun eftir veiða/sleppa. -Með því að merkja mikið af fiski og skrá niður stað, stund, lengd, kyn, vatnshita ofl. -Veiðist merktir fiskar er mjög mikilvægt að skrá það vel í bók. -(númer merkis, stað, stund, lengd, kyn, vatnshita ofl) -Öllum merktum fiski skal sleppa aftur. -Merktir fiskar eru lifandi rannsóknargögn, því lengur sem þeir lifa, því betri upplýsingar
Staðsetning: Laxá í Aðaldal er um 100 km norðaustur af Akureyri Veiðisvæði: Hraun, Engey og Syðra-Fjall Tímabil: 1. Júní – 31. ágúst Daglegur veiðitími: 7-13 og 16-22 en eftir 5. Ágúst 7-13 og 15-21 Fjöldi stanga: 2 stangir á Hrauni, 2 stangir á Syðra-Fjalli og 1 stöng í Engey Agn: Fluga Kvóti: 2 fiskar á dag á stöng – sleppa öllu yfir 40 cm Vinsælar flugur: Púpur og streamerar Veiði síðastliðið ár: Sjá mynd neðar og veiðibók á netinu (ath aðeins hluti veiðimanna skráir á netinu, aðrir skrá í bóká staðnum) Umsjónaraðili: Hermann Bárðarson, hermann.bardarson(a)uit.no og Ingvar Karl, ingvark(a)nett.is Aðstaða: Veiðihús er ekki á staðnum en veiðimönnum sem þurfa á gistingu að halda er bent á gististaðinn Brekku sem er vel staðsettur og með útsýni yfir svæðin Veiðibók:Rafræn og á staðnum Veiðileyfi: svak.is/veidileyfi Kort: Sjá mynd neðar